logo-for-printing

30. desember 2010

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2010

Gjaldmiðlavogir sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2009. Endurskoðun fór síðast fram í desember 2009. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2011 til næstu endurskoðunar að ári. 

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi.

Þröng vöruskiptavog (A) og þröng viðskiptavog (C): 

  • Engin breyting. 

Víð vöruskiptavog (B) og víð viðskiptavog (D): 

  • Súrinamískur dollar bætast við

  • Jamaíka dollar bætast við

  • Brasilískt real bætast við

  • Tékknesk koruna fellur út

  • Eistnesk kroon fellur út

  • Lettneskt lats fellur út 

Aðrar breytingar eru þær helstar í vöruviðskiptavogunum að vægi Bandaríkjadals, japanska jensins og ástralska dollarans minnkar en vægi norsku krónunnar og evrunnar eykst nokkuð. 

Nokkrar breytingar eru á vægi gjaldmiðla í viðskiptavogunum, þar sem upplýsingar um þjónustuviðskipti hafa batnað töluvert. Áður voru upplýsingar um þjónustuviðskipti sem lágu til grundvallar á viðskiptavogunum aðallega upplýsingar um ferðaþjónustu og því var vægi þjónustuviðskipta í viðskiptavoginni takmarkað. Nú er hins vegar unnt að fá mun ýtarlegri upplýsingar um þjónustuviðskipti á milli landa og því er hlutfall þjónustuviðskipta í viðskiptavoginni orðið hærra. Helstu breytingar í viðskiptavogunum eru að vægi evrunnar minnkar og vægi breska pundsins eykst á móti. 

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum: 

Vogir 2010, byggðar á gögnum 2009

Vogir 2010

Til baka