02. mars 2011
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2010
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2010 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársins.
Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 53,6 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi samanborið við 11,9 ma.kr. hagstæðan jöfnuð á fjórðungnum á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 30,1 ma.kr. og 1,7 ma.kr. afgangur var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 83 ma.kr.
Sjá nánar í meðfylgjandi pdf-skjali:
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2010 (pdf)