Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2011
Gjaldmiðlavogir sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2010. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2011. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2012 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi.
Þröng vöruskiptavog (A) og þröng viðskiptavog (C):
-
Brasilískt real bætist við.
Víð vöruskiptavog (B) og víð viðskiptavog (D):
-
Suður-Kóreskt won fellur út.
Aðrar breytingar eru þær helstar í vöruviðskiptavogunum að vægi breska pundsins og sænsku og norsku krónunnar minnkar þónokkuð, sérstaklega vægi norsku krónunnar, en vægi evrusvæðisins og brasilíska ríalsins eykst þónokkuð. Í viðskiptavogunum eru sömu helstu breytingar og í vöruviðskiptavogunum en þar að auki eykst vægi dönsku krónunnar nokkuð þar sem vægi dönsku krónunnar í þjónustuvoginni eykst umtalsvert.
Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum: