20. janúar 2012
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2012
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands í desember sl.
Dráttarvextir verða því óbreyttir 11,75% fyrir tímabilið 1. - 29. febrúar 2012.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða einnig óbreyttir fyrir tímabilið 1. – 29. febrúar 2012 og verða því áfram eftirfarandi:
• Vextir óverðtryggðra útlána 5,40%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,60%
Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 1/2012