Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2011
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2011 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.
Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 48,9 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi samanborið við 8 ma.kr. hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 15,3 ma.kr. en 5 ma.kr. halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 59,2 ma.kr.
Halla á þáttatekjum má eins og áður að miklu leyti rekja til innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 44,3 ma.kr. og tekjur 17,7 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 32,7 ma.kr. og viðskiptajöfnuður óhagstæður um 22,3 ma.kr.
Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.434 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.661 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 9.227 ma.kr. og lækka nettóskuldir um 49 ma.kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.789 ma.kr. og skuldir 3.644 ma.kr. og var hrein staða þá neikvæð um 856 ma.kr.
Sjá hér frétt nr. 7/2012 í heild með talnaefni: