18. júlí 2012
Málstofa þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 15:00
Málstofa í Seðlabankanum þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 15:00
Frummælandi: Marías H. Gestsson
Efni: Viðskiptakjör og hagstjórn í
litlu opnu hagkerfi
Hagrannsóknir sýna að þróun viðskiptakjara skiptir
miklu máli fyrir hagþróun í litlum opnum hagkerfum. Á málstofunni verða kynntar
niðurstöður rannsóknar þar sem könnuð eru áhrif viðskiptakjaraáfalla í litlu
opnu hagkerfi í Ný-Keynesísku þjóðhagslíkani og fjallað um hvort og hvernig taka
skuli tillit til slíkra áfalla við hagstjórn.
Hér má sjá glærur sem Marías Halldór notaði við flutning erindis síns:
Viðskiptakjör og hagstjórn í litlu opnu hagkerfi