17. október 2012
Standard & Poor's staðfesti óbreyttar einkunnir
Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s staðfesti í dag óbreyttar lánshæfiseinkunnir BBB-/A-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í erlendri og innlendri mynt. Horfurnar eru áfram stöðugar.Helstu atriði úr fréttatilkynningu Standard og Poor‘s eru í lauslegri þýðingu:
• Að okkar mati þá hafa stofnanalegir innviðir á Íslandi bolmagn til að takast á við vandamál tengd fjármálakerfinu og efla umhverfi sem stuðlar að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti.
• Við gerum ráð fyrir því að hagvöxtur verði um 2-3 prósent á ári frá 2012 til 2015.
• Erlendar skuldir og skuldir hins opinbera eru miklar en við gerum ráð fyrir að ríkisfjármálin haldi áfram að vera aðhaldssöm.
• Við staðfestum lánshæfiseinkunnirnar BBB-/A-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands.
• Í mati okkar á stöðugum horfum vegast á annars vegar batnandi aðstæður í efnahagslífi og hins vegar áhætta tengd afnámi gjaldeyrishafta á næstu árum
Sjá nánar: Tilkynning S&P.17.10.2012 (pdf)