Yfirlýsing peningastefnunefndar 14. nóvember 2012
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur.
Þjóðhagsspá Seðlabankans bendir til nokkru minni hagvaxtar í ár en spáð var í ágúst. Á móti kemur að hagvöxtur á næsta ári verður meiri en áður var spáð og horfurnar á spátímabilinu því svipaðar þrátt fyrir mótvind alþjóðlegrar efnahagsþróunar. Efnahagsbatinn heldur því áfram með vaxandi fjárfestingu og stöðugum vexti einkaneyslu, og slakinn í þjóðarbúskapnum hverfur á spátímabilinu.
Verðbólga hefur verið nokkru minni en spáð var í ágúst. Horft fram á veginn vegast á meiri slaki í þjóðarbúskapnum um þessar mundir en spáð var í ágúst og töluvert lægra gengi krónunnar en þá var reiknað með. Á heildina litið eru verðbólguhorfurnar metnar svipaðar. Óvissa um gengisþróun á spátímanum leiðir til samsvarandi óvissu um þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði bankans, þótt þær hafi lækkað nokkuð á suma mælikvarða.
Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta undanfarið rúmt ár og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Grunnspá Seðlabankans bendir til þess að núverandi nafnvextir bankans nægi til þess að verðbólgumarkmiðið náist á spátímanum. Það er þó m.a. háð því að endurskoðun kjarasamninga á nýju ári samrýmist hjöðnun verðbólgu að markmiðinu.
Nr. 41/2012
14. nóvember 2012
Vextir Seðlabanka Íslands verða eftir ákvörðunina sem hér segir: |
|
Daglánavextir: |
7,00% |
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga: |
6,00% |
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum: |
5,75% |
Innlánsvextir: |
5,00% |
Sjá hér nánar um vexti við Seðlabanka Íslands: Vextir 14. nóvember 2012.pdf
: |
|
|
|
|
|
|
|
|
|