Greiðslujöfnuður við útlönd
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2012 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.
Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 29,4 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 52,8 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur í vöruskiptum við útlönd var 21,2 ma.kr. og 34,8 ma.kr. í þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hins vegar neikvæður um 26,6 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 49,6 ma.kr. samanborið við 17,2 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan.
Halli á þáttatekjum er eins og áður að miklu leyti vegna innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 24,9 ma.kr. og tekjur um 4,6 ma.kr. Neikvæð áhrif innlánsstofnana í slitameðferð á þáttatekjujöfnuð nema 20,3 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa þeirra er því óhagstæður um 6,3 ma.kr.
Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.399 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.274 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 8.874 ma.kr. og lækka nettóskuldir um 230 ma.kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.408 ma.kr. og skuldir 3.525 ma.kr. og var hrein staða því neikvæð um 1.117 ma.kr. og hækka nettóskuldir um 190 ma.kr. á milli ársfjórðunga.
Á ársfjórðungnum tóku innlánsstofnanir í slitameðferð um 307 ma.kr. út af reikningum sínum í Seðlabanka Íslands og fluttu á erlenda bankareikninga. Þetta hefur talsverð áhrif á nettóskuldir þjóðarbúsins án innlánsstofnana í slitameðferð. Áhrif þessarar aðgerðar á undirliggjandi stöðu þjóðarbúsins eru hinsvegar engin.
Vegna tæknilegra breytinga urðu þau mistök að fyrirframgreiðslur Seðlabankans og íslenska ríkisins á lánum frá AGS og Norðurlöndunum sem fóru fram í júní voru ekki færðar til lækkunar á erlendri stöðu við síðasta uppgjör. Það hefur nú verið leiðrétt og nam leiðréttingin um 155 ma.kr. til lækkunar á nettóskuldum þjóðarbúsins án innlánsstofnana í slitameðferð.
Nr. 43/2012
3. desember 2012
Sjá hér fréttina í heild með töflum: Frétt: Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á þriðja ársfjórðungi 2012.