Væntingar markaðsaðila
Dagana 29. janúar – 1. febrúar sl. kannaði Seðlabanki Íslands væntingar markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu og vaxta. Leitað var til 36 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 24 aðilum og var svarhlutfallið því 67%.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði 4% á fyrsta og öðrum ársfjórðungi þessa árs og um 4,5% bæði eftir eitt og tvö ár, sem er um 0,2-0,3 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans sem framkvæmd var í nóvember sl. Jafnframt sýna niðurstöður að markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 4,5% á næstu fimm og tíu árum, sem er svipuð niðurstaða og í síðustu könnun. Markaðsaðilar vænta þess að gengi krónu gagnvart evru verði 175 krónur eftir eitt ár en það er hækkun á gengi evrunnar um 8 krónur frá síðustu könnun.
Niðurstöður könnunar bankans sýna að markaðsaðilar vænta þess að veðlánavextir Seðlabankans haldist óbreyttir í 6% á fyrri helmingi ársins en það eru 0,25 prósentum lægri vextir en í síðustu könnun bankans. Að auki vænta markaðsaðilar að veðlánavextir verði 6,25% eftir eitt ár sem er einnig lækkun um 0,25 prósentur frá fyrri könnun. Meirihluti markaðsaðila álitu taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt þegar könnunin var framkvæmd.
Sjá væntingakönnunina hér: Væntingar markaðsaðila (Excel-skjal)
Sjá ennfremur: Væntingakönnun markaðsaðila