17. júlí 2013
Erindi seðlabankastjóra um Ísland á Nýfundnalandi
Már Guðmundsson seðlabankastjóri flutti nýverið erindi á efnahagsmálaráðstefnu í St. John´s á Nýfundnalandi. Erindið fjallaði um leið Íslands úr kreppu til efnahagsbata.
Þar fjallaði seðlabankastjóri um þá lærdóma sem hægt er að draga af reynslu Íslendinga.
Meðfylgjandi er skjal með helstu efnisatriðum í erindi seðlabankastjóra og skýringarmyndum sem tengjast erindinu.
Erindið var á ensku.