07. ágúst 2013
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið reglubundnum umræðum um íslensk efnahagsmál
Hinn 1. ágúst fór fram reglubundin umræða um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi samkvæmt fjórðu grein stofnsáttmála AGS (e. 2013 Article IV discussion) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Jafnframt var rætt um mál sem varða eftirfylgni efnahagsáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda en henni lauk í ágúst 2011 (e. Post-Program Monitoring Discussion). Sjóðurinn birti í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá umræðunni. Sendinefnd AGS var hér á landi til viðræðna við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila í júní.Sjá hér að neðan gögn sem tengjast þessari umræðu AGS um Ísland.
Iceland 2013 Article IV Consultation and Third Post-Program Monitoring Discussions (pdf)
Iceland Selected Issues Paper (pdf)
Sjá einnig fréttatilkynningu á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: hér