Væntingakönnun markaðsaðila
Dagana 12.–15. ágúst sl. kannaði Seðlabanki Íslands væntingar markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu og vaxta. Leitað var til 36 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 23 aðilum og var svarhlutfallið því 64%.Niðurstöður könnunarinnar í ágúst sýna að væntingar markaðsaðila um ársverðbólgu hafa hækkað lítillega frá síðustu könnun sem framkvæmd var um miðjan maí sl. Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 4% á þriðja ársfjórðungi þessa árs og 4,2% á þeim fjórða, sem er um 0,2-0,3 prósentum meiri verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans. Niðurstöður sýna einnig að markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði 4,2% eftir eitt ár og 4,5% eftir tvö ár, sem er um 0,2-0,5 prósentna hækkun frá síðustu könnun. Væntingar þeirra um ársverðbólgu að meðaltali næstu fimm og tíu ár eru hins vegar óbreyttar milli kannana í 4,2% og 4%. Markaðsaðilar vænta þess að gengi krónu gagnvart evru verði 165 krónur eftir eitt ár sem er svipuð niðurstaða og í síðustu könnun.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir Seðlabankans haldist óbreyttir í 6% til loka þessa árs en að vextirnir hækki um 0,25 prósentur á fyrsta fjórðungi 2014, sem er svipuð niðurstaða og í könnuninni frá því í maí. Niðurstöðurnar gefa jafnframt til kynna að markaðsaðilar vænta 0,25 prósentna viðbótarhækkun á þriðja ársfjórðungi 2014 og að vextirnir verði þá 6,5%. Rúmlega helmingur markaðsaðila álitu taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt þegar könnunin var framkvæmd. Tæplega fimmtungur taldi það hins vegar vera of laust og rúmlega fimmtungur taldi það of þétt.
Sjá væntingakönnunina hér: Væntingakönnun markaðsaðila 3Q2013 (Excel skjal)
Sjá ennfremur: Væntingakönnun markaðsaðila