21. október 2013
Lýsandi reitir á nýjum tíu þúsund króna seðli
Á hinum nýja tíu þúsund króna seðli sem kynntur hefur verið og fer í umferð á næstkomandi fimmtudag, 24. október, eru bæði ný og eldri öryggisatriði. Þeirra á meðal eru lýsandi reitir sem koma í ljós við útfjólublátt ljós, en þeir sýna meðal annars töluna 10000, auk lýsandi borða í öryggisþræði.
Meðfylgjandi mynd sýnir þessa lýsandi reiti. Öryggisþráðurinn sem lýsandi borðarnir eru í er kallaður Optiks.
Sjá nánari upplýsingar um hinn nýja tíu þúsund króna seðil hér: Nýr tíu þúsund króna seðill.