Yfirlýsing vegna umfjöllunar um meintar kröfur varðandi uppgjör í tengslum við slit Glitnis og Kaupþings
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarna daga og vikur um meintar kröfur Seðlabankans og stjórnvalda varðandi uppgjör í tengslum við slit Glitnis og Kaupþings vill Seðlabankinn taka fram að slíkar kröfur hafa ekki verið settar fram af hálfu bankans.
Innan Seðlabankans hafa verið til skoðunar ýmsar hugmyndir um leiðir til þess að gera upp bú Glitnis og Kaupþings án þess að það leiði til óstöðugleika í gjaldeyrismálum eða tefli fjármálalegum stöðugleika í tvísýnu. Nokkrar leiðir sem fullnægja þessum skilyrðum gætu komið til greina. Engar ákvarðanir hafa verið teknar í þessu sambandi og Seðlabankinn getur því ekki tjáð sig um einstakar hugmyndir sem kunna eða kunna ekki að hafa verið viðraðar um lausn málsins. Einnig ber að undirstrika að losun fjármagnshafta er verkefni sem unnið hefur verið í samvinnu ríkisstjórnar og Seðlabankans og Seðlabankinn mun engu hrinda í framkvæmd hvað þetta varðar nema í samráði við fulltrúa hennar.
Eins og áður hefur komið fram telur bankinn það vera í verkahring slitastjórna bankanna að leggja fram tillögur að leiðum sem samrýmast ofangreindum markmiðum. Seðlabankinn mun að fengnum slíkum tillögum taka afstöðu til þess hvort þær samrýmast stöðugleika, þannig að veita megi nauðsynlegar undanþágur frá gjaldeyrislögum. Samkvæmt gjaldeyrislögum ber bankanum að hafa samráð við fjármálaráðherra áður en undanþága yrði veitt.