![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
24. október 2013
10.000 kr. seðill fer í umferð
![10 þúsund króna seðill 10 þúsund króna seðill](/library/Ljosmyndir_ISL/Utgefid_efni_ISL/10_thusund.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Þennan dag, fimmtudaginn 24. október 2013, verður nýr tíu þúsund króna seðill settur í umferð. Seðillinn er tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni alþýðufræðara, skáldi, íslenskumanni og náttúrufræðingi. Sjá nánari upplýsingar um seðilinn hér.