Málstofa um jafnvægisatvinnuleysi
Í dag, þriðjudaginn 12. nóvember kl. 15:00, verður málstofa haldin í fundarsal Seðlabankans á fyrstu hæð, Sölvhóli. Frummælandi er Bjarni G. Einarsson, hagfræðingur við rannsóknar- og spádeild hagfræði og peningastefnusviðs Seðlabanka Íslands.
Efni málstofunnar er „Hversu „náttúrulegt“ er náttúrulegt atvinnuleysi? Heldni í atvinnuleysi á Íslandi“.
Á málstofunni verður farið yfir niðurstöður rannsóknarritgerðar nr. 64 „How „natural“ is the natural rate? Unemployment hysteresis in Iceland“ eftir Bjarna G. Einarsson og Jósef Sigurðsson. Í ritgerðinni er jafnvægisatvinnuleysi á Íslandi metið með tveimur aðferðum, annars vegar svokallaðri ítrunaraðferð og hinsvegar Kalman-síu. Matið sýnir að jafnvægisatvinnuleysi hækkaði verulega í kjölfar fjármálakreppunnar og var 5½% samkvæmt fyrri aðferðinni og 7% samkvæmt þeirri síðari, þegar það varð mest árið 2011. Niðurstöðurnar benda til þess að jafnvægisatvinnuleysi hafi verið 5,2-5,6% undir lok síðasta árs, og að það gæti orðið 4,2% árið 2015.
Hversu varanleg áhrif fjármálakreppan mun hafa á raunhagkerfið veltur að nokkru leyti á áhrifum kreppunnar á atvinnuleysi og þar með á vinnumarkaðinn í heild. Áhrifaþættir jafnvægisatvinnuleysis eru því skoðaðir. Sérstaklega er kannað hvort kerfislægar breytingar hafi orsakað aukið jafnvægisatvinnuleysi eða hvort aukningin stafi af breytingum á mældu atvinnuleysi og þar með heildareftirspurn, þ.e. hvort vísbendingar séu um að heldni (e. hysteresis) sé til staðar í atvinnuleysi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þótt að kerfisþættir eins og breytingar á atvinnuleysisbótakerfinu skipti máli skýri heldni að mestu breytingar á jafnvægisatvinnuleysi. Það bendir til að peningastefnan geti einnig haft langtímaáhrif á atvinnuleysi. Heldni í atvinnuleysi hefur því í för með sér að enn mikilvægara er að ríkisfjármál, kjarasamningar og launaþróun séu í samræmi við verðbólgumarkmiðið. Myndist verðbólguþrýstingur verður seðlabanki að bregðast við með auknu aðhaldi sem getur valdið hærra jafnvægisatvinnuleysi.
Rannsóknarritgerðina má nálgast hér: Working papers
Við flutninginn á erindinu á málstofunni studdist Bjarni við efni á meðfylgjandi glærum:
Hversu „náttúrulegt“ er náttúrulegt atvinnuleysi. Heldni í atvinnuleysi á Íslandi.pdf