06. desember 2013
Fitch: Skuldatillögur virðast ekki hafa áhrif á ríkisfjármálin
Skuldatillögurnar sem miða að því að minnka skuldir heimilanna í gegnum lækkun höfuðstóls húsnæðislána og með skattaívilnun vegna séreignarlífeyrissparnaðar virðast vera í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um aðhaldssemi í ríkisfjármálum, samkvæmt Fitch Ratings. Hins vegar nefnir Fitch að önnur umferð skuldaafskrifta gæti skaðað viðhorf fjárfesta gagnvart íslensku viðskiptaumhverfi og telur fyrirtækið að afnám fjármagnshafta gæti orðið torveldara ef líkur er á að erlendir kröfuhafar beri mestan kostnað að slíkum aðgerðum.
Sjá nánar fréttatilkynningu Fitch Ratings hér:
Fitch: Iceland debt relief programme appears fiscally neutral.pdf
Sjá ennfremur heimasíðu Fitch Ratings hér: