Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs
Matsfyrirtækjunum Standard & Poors, Moody´s og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber reglugerð númer 462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð fyrirtækjanna á lánshæfismati sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta.
Reglugerðin gildir fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en þessi reglugerð ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.
Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra. Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2014 fyrir Ísland sem hér segir:
Matsfyrirtæki | Dagsetning |
S&P | 24. janúar |
Fitch | 7. febrúar |
Moody´s | 14. mars |
Moody's | 11. júlí |
S&P | 18. júlí |
Fitch | 1. ágúst |
Moody's | 7. nóvember |