17. febrúar 2014
Viðleitni Breta og Hollendinga til að auka endurheimtur vegna Icesave hafa ekki áhrif á lánshæfi Ríkissjóðs Íslands
Matsfyrirtækið Moody´s hefur sent frá sér álit þar sem kemur fram að lögsókn yfirvalda í Bretlandi og Hollandi fyrir hönd innstæðutryggingarsjóða þeirra á hendur Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi hafi engin áhrif á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands sem er Baa3 með stöðugum horfum. Vísað er í úrskurð EFTA-dómstólsins frá árinu 2013 um að engin greiðsluskylda vegna Icesave-reikninga hvíli á íslenska ríkinu.Fréttatilkynningin í heild er hér.