logo-for-printing

18. mars 2014

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 5. febrúar 2014 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum
Alls bárust 98 tilboð, þar af 28 í ríkisverðbréfaleið og 70 í fjárfestingarleið, samtals að fjárhæð 33,1 milljón evra. Með vísan til gr. 7. útboðsskilmálanna var ákveðið að hafna öllum tilboðum.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur
Alls bárust 24 tilboð að fjárhæð 16,2 ma.kr. Með vísan til gr. 5. útboðsskilmálanna var ákveðið að hafna öllum tilboðum.

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 14. maí, 24. júní og 2. september 2014.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

 

Nr. 7/2014
18. mars 2014

Til baka