
Úthlutun styrkja úr menningarsjóði 2014

Tilgangurinn með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.
Alls bárust 27 styrkumsóknir. Tveir styrkir voru veittir. Árni Kristjánsson hlaut einnar milljónar króna styrk til verkefnisins Völvur – leikhandrit og Helga Rut Guðmundsdóttir hlaut einnar milljónar króna styrk til verkefnisins Vísnagull – Vísur og þulur fyrir börn í fangi.
Árni Kristjánsson sótti um styrk í sjóðinn til að skrifa leikhandritið Völvur fyrir atvinnuleikhóp. Árni hefur starfað sem leikstjóri, leikritaskáld og leiklistarkennari en hefur nú snúið sér að ritstörfum og býr í Berlín. Verkið er byggt á Völuspá en aðlagað yngri kynslóð, gamanleikur sem breytist í grátt gaman og fjallar um atburðina sem leiddu til þess að Völuspá var fram sögð. Verkið verður svokallað farandverk og er ætlunin að ferðast með það á milli skóla og leikhúsa til að kynna ungu kynslóðinni kvæðið. Faðir Árna, Kristján Jóhann Jónsson, tók við styrknum fyrir hönd sonarins.
Verkefni Helgu Rutar Guðmundsdóttur, Vísnagull – Vísur og þulur fyrir börn í fangi, er bók með samantekt á íslenskum þjóðararfi og barnamenningu úr munnlegri geymd. Helga Rut hefur um árabil haldið tónlistarnámskeið fyrir foreldra með ungabörn, tveggja ára og yngri, og hefur efnið verið notað á þeim námskeiðum. Nú er komið að því að koma menningararfinum í hendur yngri kynslóða og gefa þetta dýrmæta efni út í vandaðri myndskreyttri bók.
Formaður úthlutunarnefndar er Hildur Traustadóttir, fulltrúi í bankaráði Seðlabanka Íslands, en aðrir í nefndinni eru Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, og Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Ólöf Nordal, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, flutti ávarp við athöfnina í dag og afhenti styrkina. Við það tækifæri sagði hún að það væri áberandi hve fjölbreytt verkefni væru á bak við umsóknirnar og bæru þau vott um ríka sköpunargleði og frumkvæði umsækjenda. Á þeim verkefnum sem hljóta styrk í ár mætti glöggt sjá að enn væri gömul tíð og saga okkar Íslendinga innblástur og að á skapandi hátt væri unnt að færa hana á nútímalegra plan fyrir komandi kynslóðir.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.