18. júlí 2014
S&P breytir horfum um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í jákvæðar
Hinn 18. júlí hefur matsfyrirtækið Standard & Poor‘s breytt horfunum um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs var staðfest BBB- fyrir langtímaskuldbindingar og A-3 fyrir skammtímaskuldbindingar.Hinn 19. ágúst sl. var birt skýrsla fyrirtækisins en hana má finna hér að neðan.
Helstu niðurstöður úr fréttatilkynningu S&P:
• S&P reiknar með að hagvöxtur á landinu verði að meðaltali nálægt þremur prósentum árin 2014-2017, þar sem aukin einkaneysla er drifkraftur.• Áætlað er að hrein skuldastaða hins opinbera lækki úr 71% af VLF 2014 í 61% árið 2017.
• Endurskoðaðar horfur endurspegla það mat að meira en þriðjungslíkur séu á því að lánshæfiseinkunn verði hækkuð innan 24 mánaða ef áframhald verður á öflugum og víðtækum hagvexti ásamt frekari bata í ríkisfjármálum.