![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
05. nóvember 2014
Peningamálafundur Viðskiptaráðs Íslands
![Már Guðmundsson seðlabankastjóri Már Guðmundsson seðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/Mar_Gudmundsson-9.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Már Guðmundsson seðlabankastjóri er aðalræðumaður á árlegum morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands um peningamál sem fer fram á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember. Á fundinum fer seðlabankastjóri yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum og helstu forsendur þess að lánshæfismat ríkissjóðs geti batnað á komandi árum.
Morgunverðarfundur Viðskiptaráðs um peningamálin hefst klukkan 8:00 fimmtudaginn 6. nóvember. Fundurinn er á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.