19. janúar 2015
Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2014 hefur verið vistuð hér á vef bankans.Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 10. desember 2014. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2014.
Sjá skýrsluna hér
Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér.