Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns opið á Safnanótt í kvöld frá 19:00-24:00
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns verður opið í kvöld á Safnanótt frá klukkan 19:00 til 24:00. Safnið er í byggingu Seðlabankans við Kalkofnsveg í Reykjavík. Gengið er inn frá Arnarhóli.
Myntsafnið býður upp á fróðlega og vandaða yfirlitssýningu um íslenska mynt og seðla og erlenda peninga frá fyrri öldum. Safnið varðveitir einnig og sýnir Nóbelsverðlaunapening Halldórs Laxness ásamt viðurkenningarskjali.
Flutt verður erindi um sögu gjaldmiðla og gestum gefst tækifæri til að taka þátt í kosningu um fegursta seðilinn sem í gildi er í dag.
Hægt verður að skoða höggmyndir, kynna sér sparnaðarleiðir fyrr og nú, kíkja á myndbönd sem tengjast seðlum og mynt og senda sérstakt póstkort til vina og vandamanna.
Þá geta börn sem fullorðnir fengið að teikna sinn eigin seðil.
Dagskrá Safnanætur í Seðlabankanum verður nánar tiltekið þessi:
Safnanótt 6. febrúar, kl. 19.00-24.00
Opin svæði: Sýningarsalur myntsafns, höggmyndagarður og fundarsalurinn Sölvhóll
Dagskrá:
19.00 Húsið opnað
19.30 Tónlist - Pálmi Sigurhjartarson leikur á flygil - sýningarsalur
20.00 Fyrirlestur um sögu gjaldmiðla – Sigurður Pálmason – fundarsalurinn Sölvhóll
20.30 Spilað og sungið - Pálmi Sigurhjartarson og Berglind Björk Jónasdóttir - sýningarsalur
21.30 Fyrirlestur um sögu gjaldmiðla – Sigurður Pálmason – fundarsalurinn Sölvhóll
24.00 Húsinu lokað
Sölvhóll
Sýning á stuttmyndum Seðlabankans
Fyrirlestur um sögu gjaldmiðla kl. 20.00 og 21.30
Hvernig á peningaseðill á að vera: Teiknaðu og litaðu seðil og festu hann upp á vegg í Sölvhóli
Sendu fimm krónur: Skrifaðu kveðju á póstkort og við sendum það fyrir þig
Kosning um fallegasta gildandi peningaseðilinn – úrslit kynnt á www.sedlabanki.is eftir helgi
Höggmyndagarður
Gakktu um garðinn og skoðaðu fallegar höggmyndir, upplýsingabæklingur er til staðar
Sýningarsalur Myntsafns
Fróðleg og falleg yfirlitssýning um íslenska mynt og seðla og erlenda peninga frá fyrri öldum ásamt sýningu á nokkrum sparnaðarleiðum ungmenna áður fyrr
Tónlistarflutningur
Létt hressing á boðstólum
Þú finnur svarið hér:
Hvaða fjárhæð er á fyrsta íslenska víxlinum sem varðveittur er í myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafns?