![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
09. mars 2015
Kynning á myntsafni í Seðlabankanum í alþjóðlegri viku fjármálalæsis
![Gestir á myntsafni Seðlabankans Gestir á myntsafni Seðlabankans](/library/Ljosmyndir_ISL/Vidburdir_ISL/safnanott_2015-3%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=AdalmyndFrett)
Sérstök kynning verður á efni myntsafns Seðlabankans og Þjóðminjasafns við Kalkofnsveg 1 í Reykjavík í alþjóðlegri viku fjármálalæsis sem hófst í dag. Kynningin í safninu fer fram á morgun, þ.e. þriðjudag, og einnig miðvikudag og fimmtudag, klukkan 13.30 til 15:30 alla daga. Leiðbeinandi verður Anton Holt, safnvörður í Seðlabanka Íslands.
Seðlabanki Íslands tekur einnig þátt í röð örfyrirlestra um fjármálalæsi sem haldnir verða í hádeginu á miðvikudag í Háskóla Íslands.