Þórunn Guðmundsdóttir formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands
Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður var í dag kjörin formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Þórunn var kosin í bankaráðið af Alþingi í mars síðastliðnum í stað Ólafar Nordal sem hætti í ráðinu er hún tók við embætti innanríkisráðherra. Á fundi ráðsins í dag var Þórunn svo kosin formaður. Varaformaður bankaráðsins er Jón Helgi Egilsson.