08. maí 2015
Málstofa um skuldir heimila og peningastefnu
Málstofa um þetta efni verður haldin í Sölvhóli, fundarherbergi í Seðlabankanum, þriðjudaginn 19. maí kl. 11.
Yfirskriftin er: Household debt and monetary policy: revealing the income channel.
Á málstofunni mun Jósef Sigurðsson, sem stundar doktorsnám við Stokkhólmsháskóla, fjalla um þetta efni.
Sjá hér nánari upplýsingar um málstofur á vegum Seðlabanka Íslands.