![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
20. maí 2015
Heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 7. - 20. maí 2015
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki3_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sent frá sér meðfylgjandi yfirlýsingu sem samin er eftir tveggja vikna vinnu nefndarinnar hér á landi þar sem hún hefur átt fundi með fulltrúum stjórnvalda, þingmönnum, Seðlabanka Íslands, aðilum á vinnumarkaði og fulltrúum einkageirans. Heimsókn sendinefndarinnar tengist sjöttu eftirfylgni við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins (e. Post-Program Monitoring) sem lauk í ágúst 2011.
Yfirlýsingin var kynnt á fundi með blaða- og fréttamönnum á Kjarvalsstöðum í Reykjavík í morgun. Formaður sendinefndar AGS fyrir Ísland er Peter Dohlman.
Yfirlýsing sendinefndar AGS maí 2015