![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
22. maí 2015
Leikskólakrakkar fræðast um baráttuna við verðbólguna
![Leikskólakrakkar úr Mosfellsbæ Leikskólakrakkar úr Mosfellsbæ](/library/Ljosmyndir_ISL/Vidburdir_ISL/Leikskolakrakkar_2015-1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Leikskólakrakkar úr Mosfellsbæ og kennarar þeirra heimsóttu Seðlabanka Íslands í vikunni og fræddust meðal annars um ýmislegt um peninga og baráttuna við verðbólguna.
Krakkarnir höfðu mikinn áhuga á að skoða ýmsa mynt og voru forvitin um öryggisatriði sem tengjast peningaseðlum. Þá fengu þau að heyra sitt hvað um verðbólgudrauginn og baráttuna við að halda honum í skefjum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri.