![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2015
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki3_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2015
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2015, útgefinni 19. maí sl., er stýrivextir hækkuðu um 0,50 prósentur hinn 10. júní sl. sbr. yfirlýsingu peningastefnunefndar þar um sama dag.
Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 12,75% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2015.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2015;
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00% - (óbreyttir)