Könnun á væntingum markaðsaðila
Könnun á væntingum markaðsaðila var framkvæmd dagana 10.-13. ágúst sl. Leitað var til 30 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 18 aðilum og var svarhlutfallið því 60%.
Niðurstöður könnunarinnar í ágúst gefa til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila hafi hækkað frá maíkönnun bankans. Miðað við miðgildi svara í könnuninni virðast þeir vænta um 2,1% verðbólgu á þriðja fjórðungi þessa árs, 2,9% á þeim fjórða og 3,7% á fyrsta fjórðungi næsta árs. Það er um 0,1-0,7 prósentum meiri verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í maí. Könnunin bendir einnig til þess að þeir búist við 3,9% verðbólgu eftir eitt ár og 3,5% eftir tvö ár sem er um 0,4-0,5 prósentum meira en í maí. Væntingar um meðalverðbólgu á næstu fimm og tíu árum hafa hækkað um 0,2-0,4 prósentur milli kannana og eru nú 3,5% og 3,4%. Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi evru verði 145 krónur eftir eitt ár sem er um 3,3% lægra en í síðustu könnun bankans.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir bankans verði hækkaðir um 0,75 prósentur til loka þessa árs og 0,5 prósentur til viðbótar á fyrri helmingi þess næsta, í 7%. Það eru allt að 1 prósentu hærri vextir en þeir væntu í maíkönnun bankans. Þegar könnunin var framkvæmd taldi um 67% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt sem er svipað og í síðustu könnun. Hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of laust eða alltof laust hækkaði hins vegar úr 11% í 28% og hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt lækkaði úr 28% í 6%.
Í könnuninni í ágúst voru markaðsaðilar spurðir hverjar þeir telja líkurnar vera á að ársverðbólga verði á bilinu 2-3% eftir 12 mánuði annars vegar og 24 mánuði hins vegar. Um 78% svarenda taldi á bilinu 0-40% líkur á að verðbólgan yrði á bilinu 2-3% eftir 12 mánuði en um 60% svarenda taldi samsvarandi líkur vera á að verðbólga yrði á þessu bili eftir 24 mánuði.
Sjá væntingakönnunina hér: Væntingakönnun markaðsaðila 3F2015 (Excel-skjal)
Frekari upplýsingar um væntingakönnunar markaðsaðila má finna hér: Væntingakönnun markaðsaðila