![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
02. september 2015
Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki39_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Hrein erlend staða við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2015 var neikvæð um 7.665 ma.kr. eða 365% af vergri landsframleiðslu. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð var staðan aftur á móti jákvæð um 114 ma.kr. eða 5,4% af vergri landsframleiðslu. Slit innlánsstofnana í slitameðferð, miðað við núverandi stöðu og bókfært virði eigna, hafa neikvæð áhrif á hreinu erlendu stöðuna sem nemur 806 ma.kr. eða um 38% af vergri landsframleiðslu.
Undirliggjandi erlend staða er því metin neikvæð um 691 ma.kr. eða 33% af áætlaðri vergri landsframleiðslu í lok annars ársfjórðungs 2015.
Sjá nánar: Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins í lok annars ársfjórðungs 2015.pdf