Málstofa í dag um verðtryggða og óverðtryggða fjármögnun ríkissjóðs
Í dag verður haldin málstofa í Seðlabanka Íslands um mun á verðtryggðri og óverðtryggðri fjármögnun ríkissjóðs. Málshefjandi er Kjartan Hansson, sérfræðingur í Seðlabanka Íslands á sviði markaðsviðskipta og fjárstýringar. Málstofan hefst klukkan 15:00.
Málstofan í dag klukkan 15:00:
Ríkissjóður: Verðtryggð eða óverðtryggð fjármögnun? Frummælandi er Kjartan Hansson, sérfræðingur í Seðlabanka Íslands á sviði markaðsviðskipta og fjárstýringar.
Í gær var haldin hér málstofa um áhrifin af því að draga úr skyldulífeyrissparnaði. Málshefjandi var Svend E. Hougaard Jensen, prófessor við Copenhagen Business School. Sjá nánar hér: Áhrif af að draga úr skyldulífeyrissparnaði. Hér er grein sem hann byggir erindi sitt á: Occupational Pensions, Aggretate Saving and Fiscal Sustainability in Denmark.pdf Greinin er eftir Jan. V. Hansen, Svend E. Hougard Jensen og Peter P. Stephensen.
Málstofur Seðlabankans eru haldnar í húsnæði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 í Reykjavík, og hefjast að jafnaði klukkan 15:00.