![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
15. janúar 2016
Fitch Ratings staðfestir óbreytt lánshæfismat ríkissjóðs: Horfur stöðugar
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki1_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB+ og fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt sem A-. Lánshæfismatið fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er óbreytt sem F2 og fyrir landseinkunnina (e. Country Ceiling) sem BBB+. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar.
Frétt Fitch er hér: Fitch Affirms Iceland at 'BBB+'; Outlook Stable.