Könnun á væntingum markaðsaðila
Könnun á væntingum markaðsaðila var framkvæmd dagana 1.-3. febrúar sl. Leitað var til 29 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 17 aðilum og var svarhlutfallið því 59%.
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila hafi lækkað frá októberkönnun bankans, einkum skammtímaverðbólguvæntingar þeirra. Miðað við miðgildi svara í könnuninni virðast þeir vænta um 1,9% verðbólgu á fyrsta fjórðungi þessa árs, 2% á öðrum fjórðungi og 2,5% á þriðja fjórðungi. Það er um 0,7-0,9 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í október. Könnunin bendir einnig til þess að þeir búist við að verðbólga verði 3% eftir eitt ár og 3,5% eftir tvö ár sem er 0,5-0,8 prósentum minna en í síðustu könnun. Þá vænta þeir að meðalverðbólga á næstu fimm árum verði 3,2% sem er lækkun um 0,3 prósentur frá könnuninni í október. Væntingar um meðalverðbólgu á næstu tíu árum eru hins vegar óbreyttar á milli kannana eða 3,3%. Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi evru verði 139 krónur eftir eitt ár sem er svipað og í síðustu könnun bankans.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni væntu markaðsaðilar þess að veðlánavextir bankans verði hækkaðir um ½ prósentu á síðari hluta þessa árs í 7% líkt og þeir væntu í októberkönnun bankans. Núverandi könnun gefur hins vegar til kynna að þeir búist við að vextirnir verði enn 7% eftir tvö ár sem er um 0,25 prósentum lægri vextir en í síðustu könnun. Þegar könnunin var framkvæmd taldi um 37½% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt sem er tæplega 9 prósentum lægra en í síðustu könnun. Hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of laust eða alltof laust lækkaði úr 38½% í tæplega 19% en hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt hækkaði úr 15½% í tæplega 44%.
Sjá væntingakönnunina hér: Væntingakönnun markaðsaðila á 1. ársfj. 2016
Frekari upplýsingar um væntingakönnun markaðsaðila má finna hér: Væntingakönnun markaðsaðila