![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
15. apríl 2016
Ungt fólk kynnir sér starfsemi Seðlabanka Íslands
![Nemendur úr Menntaskólanum við Hamrahlíð komu í heimsókn í Seðlabankann Nemendur úr Menntaskólanum við Hamrahlíð komu í heimsókn í Seðlabankann](/library/Ljosmyndir_ISL/Vidburdir_ISL/MH-Nemendur-2016.png?proc=AdalmyndFrett)
Heimsóknir skólahópa og starfsmannahópa í Seðlabankann eru tíðar. Hóparnir fá stutta kynningu á starfsemi bankans og fá jafnframt stutta kynningu á húsnæði og aðstöðu. Í vikunni komu tveir hópar úr Menntaskólanum við Hamrahlíð og var heimsóknin liður í námi þeirra í hagfræði. Með þeim í för var Jón Ragnar Ragnarsson kennari þeirra og var meðfylgjandi mynd tekin af fyrri hópnum.
Í heimsóknum af þessu tagi er farið stuttlega yfir helstu verkefni bankans, svo sem varðandi verðbólgumarkmið og peningastefnu, fjármálastöðugleika, greiðslukerfi (m.a. seðla og mynt) og gjaldeyrisforða, þjónustu við ríkissjóð á borð við lánamál ríkisins, gjaldeyriseftirlit og fleiri verkefni.