20. apríl 2016
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2016
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2016 er gefin var út 16. mars sl. þar sem að stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir verða því óbreyttir 13,50% fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2016.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2016;
• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,70%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2016