Yfirlýsing peningastefnunefndar 1. júní 2016
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,75%. Jafnframt ákvað nefndin að lækka bindiskyldu um 0,5 prósentur, í samræmi við fyrri yfirlýsingar.
Efnahagshorfur eru lítið breyttar frá síðustu vaxtaákvörðun. Áfram er útlit fyrir öran hagvöxt og vaxandi spennu gætir á vinnumarkaði. Þrátt fyrir miklar launahækkanir og vaxandi framleiðsluspennu hefur verðbólga haldist undir markmiði um ríflega tveggja ára skeið. Í maí mældist verðbólga 1,7%, svipuð og hún var fyrir ári. Sem fyrr vegast þar á annars vegar innlendur verðbólguþrýstingur og hins vegar áhrif gengishækkunar krónunnar og óvenju lítillar alþjóðlegrar verðbólgu. Að öðru óbreyttu er útlit fyrir að verðbólga verði undir markmiði fram eftir ári en aukist þegar innflutningsverðlag hættir að lækka, eins og gert var ráð fyrir í síðustu spá Seðlabankans sem birtist í Peningamálum 2016/2 í maí.
Alþjóðleg verðlagsþróun og sterkari króna hafa veitt svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Að sama skapi eru vísbendingar um að peningastefnan hafi skapað verðbólguvæntingum traustari kjölfestu en áður og stuðlað að því að verðbólga hefur aukist minna en vænta mátti í kjölfar mikilla launahækkana. Það breytir hins vegar ekki því að miðað við spá Seðlabankans frá fyrri hluta maímánaðar er líklegt að auka þurfi aðhald peningastefnunnar frekar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings. Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni.
Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands
Frétt nr. 11/2016
1. júní 2016