![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Breyting á útboðsskilmálum vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri, birt 13. júní 2016
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki37_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands hefur breytt útboðsskilmálum vegna kaupa bankans á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri, en útboðið sem auglýst var 25. maí sl. fer fram 16. júní 2016.
Breyting er gerð á orðalagi 4. gr. skilmálanna til að árétta að samsetning magntilboða og gildra verðtilboða komi til með að mynda lægsta mögulega kaupverð á krónum í skiptum fyrir evrur í útboðinu. Enn fremur er 5. gr. útboðsskilmálanna breytt til samræmis við breytingar á 4. gr. ásamt því að ekki er lengur gerður áskilnaður í 5. gr. um að tilboðum undir 190. kr. pr. evru verði hafnað að fullu.
Aðrar efnislegar breytingar hafa ekki verið gerðar á útboðsskilmálunum.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.
Fylgiskjöl:
Sjá áður birtar upplýsingar um úboðið hér.
Frétt nr. 15/2016
13. júní 2016