22. júní 2016
Skilmálar gjaldeyriskaupa á útboðsgengi Seðlabanka Íslands
22. júní 2016
Í fréttatilkynningu Seðlabanka Íslands sem birt var í gær, 21. júní 2016, kom fram að Seðlabanki Íslands hefði ákveðið í framhaldi af niðurstöðu gjaldeyrisútboðsins sem fram fór 16. júní síðastliðinn að bjóðast til að kaupa á útboðsgenginu 190 kr. á hverja evru aflandskrónaeignir sem ekki voru seldar í útboðinu 16. júní síðastliðinn.
Hlekk á skilmála gjaldeyriskaupanna er að finna hér að neðan.
Skilmálar gjaldeyriskaupa á útboðsgengi Seðlabanka Íslands.pdf (Birt 22. júní 2016)
Peningaþvætti og áreiðanleikakönnun - spurningar og svör.pdf (Birt 22. júní 2016)