![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
22. júní 2016
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2016
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki11_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2016 er gefin var út 19. maí sl. þar sem að stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir verða því óbreyttir 13,50% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2016.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2016;
• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,70%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2016