Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2016
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,50 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands hinn 24. ágúst sl. sbr. tilkynningu bankastjórnar þar um sama dag.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,50 prósentur frá og með 1. október nk. og verða 13,00% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2016.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast eins og fram kemur hér fyrir neðan og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2016;
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,55% - (lækka úr 7,05%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,37% - (lækka úr 4,70%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2016