![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Efni Fjármálastöðugleika kynnt í dag
![Forsíða Fjármálastöðugleika Forsíða Fjármálastöðugleika](/library/Ljosmyndir_ISL/Utgefid_efni_ISL/FS_Kapa.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Í dag verður birt skýrslan Fjármálastöðugleiki 2016/2. Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga. Í ritinu greinir Seðlabankinn frá því hvernig hann vinnur að verkefnum sem varða virkt og öruggt fjármálakerfi.
Fjármálastöðugleiki er einnig gefinn út á ensku undir heitinu Financial Stability. Ritið verður birt á vef Seðlabankans klukkan 10:30 í dag. Klukkan 10:00 hefst kynningarfundur fyrir fjölmiðla og fulltrúa fjármálafyrirtækja, atvinnulífs og fræðastofnana þar sem Harpa Jónsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs, og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynna efni ritsins.
Sjá fyrri rit hér.