![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
20. október 2016
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2016
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki3_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2016 dagsett 16. september sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2016.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 30. nóvember 2016 sem hér segir:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,55%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,37%