Breytingar á lögum um gjaldeyrismál
Lög um breytingar á lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, tóku gildi 21. október 2016. Þau miða að losun fjármagnshafta á heimili og fyrirtæki. Þær meginbreytingar sem gerðar eru á lögunum fela í sér auknar heimildir til fjármagnshreyfinga á milli landa og gjaldeyrisviðskipta, svo og afnám tiltekinna takmarkana sem gilt hafa um fjármagnshreyfingar á milli landa og gjaldeyrisviðskipti. Hluti þeirra breytinga sem samþykktar voru taka gildi strax, en aðrar taka gildi hinn 1. janúar 2017. Seðlabanka Íslands ber jafnframt að endurskoða fjárhæðarmörk heimilda, sem gilda um tilteknar fjármagnshreyfingar á milli landa í erlendum gjaldeyri og gjaldeyrisviðskipti, í reglum bankans fyrir 1. júlí 2017.
Breytingarnar eru liður í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta sem kynnt var 8. júní 2015. Með þeim eru stigin veigamikil skref í átt að fullri losun fjármagnshafta.
Helstu breytingar á lögum um gjaldeyrismál, sem taka gildi strax, eru eftirfarandi:
- Bein erlend fjárfesting er ótakmörkuð en háð staðfestingu Seðlabanka Íslands.
- Fjárfesting í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peningakröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðsla erlendra lána er heimil fyrir jafnvirði allt að 30.000.000 kr., að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
- Einstaklingum er heimilt að kaupa eina fasteign erlendis á almanaksári, óháð tilefni og kaupverði.
- Heimild til kaupa á erlendum gjaldeyri vegna ferðalaga erlendis hækkar úr 350.000 kr. á mánuði í 700.000 kr.; nú vegna hverrar ferðar.
- Skilaskylda erlends gjaldeyris vegna lántöku einstaklinga hjá erlendum aðilum til kaupa á fasteign, farartæki eða vegna fjárfestinga erlendis er afnumin.
- Ýmsar sértækar takmarkanir eru afnumdar eða rýmkaðar, m.a. heimildir einstaklinga til kaupa á ferðagjaldeyri, greiðslu skatta og kaupa á farartækjum.
- Heimildir Seðlabanka Íslands til upplýsingaöflunar á grundvelli hlutverka hans sem seðlabanka eru rýmkaðar í því skyni hann geti aflað upplýsinga sem auðvelda bankanum að stuðla að verðlags- og fjármálastöðugleika eftir að fjármagnshöft hafa verið losuð.
Helstu breytingar á lögum um gjaldeyrismál, sem taka gildi hinn 1. janúar 2017, eru eftirfarandi:
- Fjárhæðarmörk hækkuð í 100.000.000 kr. vegna fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peningakröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðslu lána í erlendum gjaldeyri.
- Innstæðuflutningur heimilaður innan framangreindra fjárhæðarmarka. Skilyrði um innlenda vörsluaðila erlendrar verðbréfafjárfestingar fellur niður og vörsluflutningur verðbréfa heimill. Þar með munu innlendir og erlendir aðilar geta flutt innstæður og verðbréf til og frá landinu og átt viðskipti með verðbréf erlendis innan þeirra marka sem lögin setja þeim.
- Heimildir einstaklinga til kaupa á og úttekta á erlendum gjaldeyri í reiðufé rýmkaðar verulega þannig að einstaklingum verður heimilt að kaupa eða taka út erlendan gjaldeyri í reiðufé innan framangreindra fjárhæðarmarka.
Samhliða breytingum á lögum um gjaldeyrismál hafa reglur um gjaldeyrismál einnig verið uppfærðar, sbr. reglur nr. 826/2016, um gjaldeyrismál. Seðlabanki Íslands hefur sett leiðbeiningar um framkvæmd reglnanna sem er ætlað að aðstoða fjármálafyrirtæki og aðra aðila í tilvikum þar sem krafist er tilkynningar til Seðlabankans eða staðfestingar hans á gjaldeyrisviðskiptum og fjármagnshreyfingum á milli landa og þannig að tryggt sé að þær séu í samræmi við færslulýsingar sem finna má í leiðbeiningum við reglurnar. Þá hefur Seðlabankinn gefið út leiðbeiningar til skýringar á því hvernig sýna skuli fram á að tiltekin viðskipti, sem fela í sér fjármagnshreyfingu á milli landa, eigi sér stað á grundvelli heimildar í lögum um gjaldeyrismál, s.s. vöru- eða þjónustuviðskipti.
Sjá hér: Reglur og leiðbeiningar
Seðlabanki Íslands mun leggja mat á fyrirliggjandi beiðnir um undanþágur með tilliti til þess hvort þær falli undir heimildir laganna og séu þ.a.l. ekki lengur undanþáguskyldar. Umsækjandi um undanþágu getur einnig haft samband við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans til frekari upplýsinga um stöðu beiðni sinnar. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið gjaldeyrismal@sedlabanki.is eða hringja í síma 569-9600, en símatími lögfræðinga gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands er frá 10:00 til 11:30 alla virka daga.
Áætlað er að lögin muni leiða til þess að beiðnum um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál fækki um 50–65%. Jafnframt má gera ráð fyrir því að afgreiðslutími undanþágubeiðna styttist til muna.
Lög um breytingu á lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum (losun fjármagnshafta).
Reglur um gjaldeyrismál nr. 862/2016.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.
Frétt nr. 27/2016
21. október 2016