![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
18. nóvember 2016
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2016
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki2_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 10/2016 sem dagsett er 19. október sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,0% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2016.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 31. desember 2016 sem hér segir:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,55%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,37%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2016