Öryggisþættir í peningaseðlum
Seðlabanki Íslands hefur einkarétt á því að gefa út gjaldmiðil Íslands. Seðlabankinn leggur áherslu á trúverðugleika íslenskra peninga, m.a. með ýmsum öryggisþáttum í seðlum. Öryggisþættirnir auðvelda greiningu á seðlum og gera fölsun erfiðari. Öryggisþættir hafa verið til staðar í seðlum í mörg hundruð ár. Einn fyrsti öryggisþátturinn í seðlum var handskrifuð undirskrift, en margir þættir hafa bæst við, svo sem sérunninn pappír, vatnsmerki, öryggisþráður og upphleypt prentun. Síðustu ár hafa seðlabankar sett í umferð nýja seðla með fleiri og fullkomnari öryggisþáttum. Einnig hafa nokkrir seðlabankar uppfært eldri seðla sína í sama tilgangi.
Hér má finna frekari upplýsingar og öryggisþætti um íslenska seðla.
ÖRYGGISÞÆTTIR | |||||
---|---|---|---|---|---|
500 |
1000 |
2000 |
5000 |
10000 |
|
Vatnsmerki með andlitsmynd | * | * | * | * | * |
Öryggisþráður | * | * | * | * | * |
Númer til hægri á framhlið sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi | * | * | * | * | * |
Númer til vinstri á framhlið og áritun bankastjóra sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi | * | ||||
Lína með örletri | * | * | * | * | * |
Örletur í tölum | * | * | * | * | * |
OPTIKS I | |||||
Málmþynna | * | * | * | ||
Öryggisþráður með texta | * | * | * | ||
Bjart vatnsmerki | * | * | |||
Smáletur | * | * | * | * | |
Lýsandi reitur | * | * | * | * | |
Vatnsmerki í hornum | * | * | * | ||
Blindramerki | | | || | D | ||| | |||| |