07. desember 2016
Fjármálainnviðir 2016
Ritið Fjármálainnviðir 2016 hefur nú verið birt hér á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu er til umfjöllunar staða og þróun mála á vettvangi greiðslumiðlunar, fjallað er um rekstur eigin millibankakerfa Seðlabanka Íslands og yfirsýnar- og reiðufjárhlutverk hans. Enn fremur er fjallað um net- og upplýsingaöryggi og þróun regluverks. Þá er í ritinu í fyrsta sinn leitast við að leggja mat á kostnað samfélagsins við greiðslumiðlun.
Sjá hér Fjármálainnviði 2016.
Sjá hér myndagögn í ritinu.
Sjá hér talnagögn í ritinu.
Sjá hér yfirlit yfir rit bankans.